Ferill 3. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
149. löggjafarþing 2018–2019.
Þingskjal 605 — 3. mál.
Frumvarp til laga
um breytingu á ýmsum lögum vegna fjárlaga fyrir árið 2019.
(Eftir 2. umræðu, 5. desember.)
I. KAFLI
Breyting á lögum um umhverfis- og auðlindaskatta, nr. 129/2009, með síðari breytingum.
1. gr.
2. gr.
Þrátt fyrir ákvæði 2. mgr. 1. gr. skal fjárhæð kolefnisgjalds vera 10,40 kr. á hvern lítra af gas- og dísilolíu, 9,10 kr. á hvern lítra af bensíni, 12,80 kr. á hvert kílógramm af brennsluolíu og 11,40 kr. á hvert kílógramm af jarðolíugasi og öðru loftkenndu kolvatnsefni til 1. janúar 2020.
II. KAFLI
Breyting á lögum um gjald af áfengi og tóbaki, nr. 96/1995, með síðari breytingum.
3. gr.
a. Í stað „119,60 kr.“ í 1. tölul. 1. mgr. kemur: 122,60 kr.
b. Í stað „108,95 kr.“ í 2. tölul. 1. mgr. kemur: 111,65 kr.
c. Í stað „147,40 kr.“ í 3. tölul. 1. mgr. kemur: 151,10 kr.
d. Á eftir 2. mgr. koma tvær nýjar málsgreinar, svohljóðandi:
Áfengisgjald skal lagt á í samræmi við upplýsingar um vínandamagn sem tilgreindar eru á umbúðum vöru.
Telji tollstjóri eða ríkisskattstjóri að upplýsingar á umbúðum séu rangar er þeim heimilt að mæla vínandamagn eða fela það öðrum viðurkenndum aðila og miðast álagning áfengisgjalds þá við niðurstöðu þeirra mælinga. Kostnaður við mælingar skal greiddur af framleiðanda eða innflytjanda vörunnar hafi vínandamagn verið ranglega tilgreint.
4. gr.
a. Í stað „491,05 kr.“ í 1. tölul. kemur: 503,35 kr.
b. Í stað „27,30 kr.“ í 2. tölul. kemur: 28,00 kr.
c. Í stað „27,30 kr.“ í 3. tölul. kemur: 28,00 kr.
5. gr.
a. Í stað „616,85 kr.“ í 1. tölul. kemur: 632,25 kr.
b. Í stað „34,25 kr.“ í 2. tölul. kemur: 35,10 kr.
III. KAFLI
Breyting á lögum um vörugjald af ökutækjum, eldsneyti o.fl., nr. 29/1993, með síðari breytingum.
6. gr.
7. gr.
IV. KAFLI
Breyting á lögum um olíugjald og kílómetragjald, nr. 87/2004, með síðari breytingum.
8. gr.
9. gr.
a. 4. mgr. orðast svo:
Kílómetragjald af gjaldskyldum bifreiðum skv. 1. tölul. 1. mgr., sbr. 3. tölul., skal vera sem hér segir:
Leyfð heildarþyngd ökutækis, kg |
Kílómetra- gjald, kr. |
Leyfð heildarþyngd ökutækis, kg |
Kílómetra- gjald, kr. |
10.000–11.000 | 0,32 | 21.001–22.000 | 7,75 |
11.001–12.000 | 0,99 | 22.001–23.000 | 8,44 |
12.001–13.000 | 1,67 | 23.001–24.000 | 9,10 |
13.001–14.000 | 2,36 | 24.001–25.000 | 9,78 |
14.001–15.000 | 3,03 | 25.001–26.000 | 10,44 |
15.001–16.000 | 3,71 | 26.001–27.000 | 11,13 |
16.001–17.000 | 4,38 | 27.001–28.000 | 11,82 |
17.001–18.000 | 5,05 | 28.001–29.000 | 12,49 |
18.001–19.000 | 5,73 | 29.001–30.000 | 13,15 |
19.001–20.000 | 6,39 | 30.001–31.000 | 13,83 |
20.001–21.000 | 7,09 | 31.001 og yfir | 14,50 |
Sérstakt kílómetragjald af gjaldskyldum ökutækjum skv. 2. mgr. skal vera sem hér segir:
Leyfð heildarþyngd ökutækis, kg |
Kílómetra- gjald, kr. |
Leyfð heildarþyngd ökutækis, kg |
Kílómetra- gjald, kr. |
5.000–6.000 | 9,51 | 18.001–19.000 | 25,11 |
6.001–7.000 | 10,29 | 19.001–20.000 | 26,24 |
7.001–8.000 | 11,08 | 20.001–21.000 | 27,40 |
8.001–9.000 | 11,87 | 21.001–22.000 | 28,55 |
9.001–10.000 | 12,63 | 22.001–23.000 | 29,66 |
10.001–11.000 | 13,76 | 23.001–24.000 | 30,80 |
11.001–12.000 | 15,23 | 24.001–25.000 | 31,94 |
12.001–13.000 | 16,69 | 25.001–26.000 | 33,08 |
13.001–14.000 | 18,14 | 26.001–27.000 | 34,20 |
14.001–15.000 | 19,61 | 27.001–28.000 | 35,36 |
15.001–16.000 | 21,05 | 28.001–29.000 | 36,50 |
16.001–17.000 | 22,51 | 29.001–30.000 | 37,64 |
17.001–18.000 | 23,99 | 30.001–31.000 | 38,75 |
31.001 og yfir | 39,90 |
10. gr.
Ef ekki er komið með ökutæki til álestrar á öðru álestrartímabili ársins 2018, sem stendur frá 1. til 15. desember 2018, sbr. 1. mgr. 14. gr., skal reikna út meðaltal ekinna kílómetra á dag á tímabilinu milli álestra. Þá skal hið nýja gjald innheimt eftir meðaltalsakstri eftir 1. janúar 2019.
Við ákvörðun kílómetragjalds og sérstaks kílómetragjalds skv. 13. gr. á álestrartímabilinu 1. júní til 15. júní 2019 skal ríkisskattstjóri deila eknum kílómetrum frá fyrri álestri með dagafjölda sama tímabils og reikna kílómetragjald af hverjum eknum kílómetra miðað við fjölda gjaldskyldra daga fyrir 1. janúar 2019 og fjölda gjaldskyldra daga eftir 1. janúar 2019.
V. KAFLI
Breyting á lögum um bifreiðagjald, nr. 39/1988, með síðari breytingum.
11. gr.
a. Í stað „5.925 kr.“ og „142 kr.“ í 2. mgr. kemur: 6.075 kr.; og: 146 kr.
b. Í stað „55.510 kr.“, „2,37 kr.“ og „87.375 kr.“ í 4. mgr. kemur: 56.900 kr.; 2,43 kr.; og: 89.560 kr.
VI. KAFLI
Breyting á lögum um greiðslu kostnaðar við opinbert eftirlit með fjármálastarfsemi, nr. 99/1999, með síðari breytingum.
12. gr.
a. Í stað „0,0385%“ í a-lið 1. tölul. kemur: 0,0376%.
b. Í stað „0,4403%“ í 2. tölul. kemur: 0,42%.
c. Í stað „0,0236%“ og „0,0128%“ í 6. tölul. kemur: 0,0254%; og: 0,0137%.
d. Í stað „0,0091%“ í 9. tölul. kemur: 0,0084%.
e. Í stað „0,0087%“ í 11. tölul. kemur: 0,0092%.
f. Í stað „0,01%“ í 12. tölul. kemur: 0,0094%.
g. Við bætist nýr töluliður, svohljóðandi: Náttúruhamfaratrygging Íslands skal greiða fastagjald sem nemur 1.200.000 kr.
VII. KAFLI
Breyting á lögum um greiðslu kostnaðar við rekstur umboðsmanns skuldara, nr. 166/2011, með síðari breytingum.
13. gr.
VIII. KAFLI
Breyting á lögum um málefni aldraðra, nr. 125/1999, með síðari breytingum.
14. gr.
15. gr.
16. gr.
Vegna útreiknings á dvalarframlagi skv. 21. gr. er á tímabilinu 1. janúar 2019 til og með 31. desember 2019 unnt að óska eftir því að Tryggingastofnun ríkisins beri saman útreikning dvalarframlags fyrir og eftir gildistöku laga nr. 166/2006 og laga nr. 120/2009. Ef samanburðurinn sýnir aukna kostnaðarþátttöku heimilismanns frá því sem var fyrir gildistöku þeirra laga skal leiðrétta dvalarframlag vegna framangreinds tímabils til samræmis við það.
IX. KAFLI
Breyting á lögum um almannatryggingar, nr. 100/2007, með síðari breytingum.
17. gr.
a. Í stað „2018“ í 14. tölul. kemur: 2019.
b. Í stað „2018“ þrívegis í 1. málsl. 18. tölul. kemur: 2019.
c. Í stað „31,75%“ í 1. málsl. 18. tölul. kemur: 36,23%.
X. KAFLI
Breyting á lögum um félagslega aðstoð, nr. 99/2007, með síðari breytingum.
18. gr.
a. Í stað „2018“ þrívegis kemur: 2019.
b. Í stað „31,75%“ kemur: 36,23%.
XI. KAFLI
Breyting á lögum um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða, nr. 129/1997, með síðari breytingum.
19. gr.
XII. KAFLI
Breyting á lögum um stöðu, stjórn og starfshætti þjóðkirkjunnar, nr. 78/1997, með síðari breytingum.
20. gr.
Þrátt fyrir ákvæði laganna skal skuldbinding ríkisins skv. 60. gr. á árinu 2019 samkvæmt sérstöku samkomulagi íslenska ríkisins og þjóðkirkjunnar vera 1.852,8 millj. kr. Framlag til Kristnisjóðs skal vera 75,9 millj. kr. á árinu 2019.
XIII. KAFLI
Breyting á lögum um sóknargjöld o.fl., nr. 91/1987, með síðari breytingum.
21. gr.
Þrátt fyrir ákvæði 2. gr. laganna skal gjald sem rennur til þjóðkirkjusafnaða og skráðra trúfélaga vera 925 kr. á mánuði árið 2019 fyrir hvern einstakling 16 ára og eldri í lok næstliðins árs á undan gjaldári.
XIV. KAFLI
Breyting á lögum um loftslagsmál, nr. 70/2012, með síðari breytingum.
22. gr.
XV. KAFLI
Breyting á lögum um Ríkisútvarpið, fjölmiðil í almannaþágu, nr. 23/2013, með síðari breytingum.
23. gr.
XVI. KAFLI
Breyting á lögum um tryggingagjald, nr. 113/1990, með síðari breytingum.
24. gr.
XVII. KAFLI
25. gr.
XVIII. KAFLI
Breyting á lögum um úrvinnslugjald, nr. 162/2002, með síðari breytingum.
26. gr.
a. Í stað „0,20 kr./kg“ í tollskrárnúmerinu 2710.1920 kemur: 35,00 kr./kg.
b. Við bætist nýtt tollskrárnúmer, svohljóðandi:
2710.1940 – – – Brennsluolíur 0,20 kr./kg
27. gr.
– – Að heildarþyngd yfir 5 tonn:
8701.2021 – – – Nýjar 18.000 kr./stk.
8701.2029 – – – Notaðar 18.000 kr./stk.
XIX. KAFLI
Breyting á lögum um opinber fjármál, nr. 123/2015, með síðari breytingum.
28. gr.
Þrátt fyrir ákvæði 9. gr. er ráðherra heimilt að leggja fyrir Alþingi skýrslu þar sem fram kemur mat á líklegri þróun samfélags-, atvinnu-, umhverfis- og byggðaþátta og lýðfræðilegra breytna til næstu áratuga og áhrifum þeirra á afkomu, fjárhagsstöðu og skuldbindingar opinberra aðila eigi síðar en í árslok 2019.
XX. KAFLI
Gildistaka.
29. gr.
Ákvæði 14. gr. kemur til framkvæmda við álagningu opinberra gjalda á árinu 2019 vegna tekna ársins 2018.
Þrátt fyrir ákvæði 1. mgr. öðlast 1.–13., 17., 19. og 22.–27. gr. gildi 1. janúar 2019.